1.1.2009 Gleđilegt nýtt ár.Ragnhildur Ben
Annáll 2008... NánarSKÍTAKULDIRagnhildur Ben
Eilífđar andsk.. kuldi alla tíđ á ţessu skítaskeri.Atvinnuleysi ,útrás og vanhćfir landsfeđur.... Nánar"Ó"heppniRagnhildur Ben
Var andsk.. óheppin í morgun evran kominn í 200 hundruð kall og ég á bara fáeinar græddi þar af leiðandi frekar lítið.En heppinn seinnipartinn þegar hún var kominn í 150 kall átti svo fáar að ég tapaði litlu.Sæl að sinni.
munið að fara vel með ykkur og vera góð hvert við annað.
Segir orrustan sem er sátt við að eiga lítið og tapar því litlu.
KREPPANRagnhildur Ben
Er greinilega skollin á hér austan jöklu.Gerði slátur um helgina leit út um tíma að ekkert yrði af því rúgmjölsskortur var bæði í Bónus og Kaupfélaginu.Tókst þó fyrir rest að ná í það sem mig vantaði drýgði samt smá af hreindýralifrapylsu með fjallagrösum sem týns voru í sumar við Lindarsel.Nánast búin að fylla öll ker og ámur og þá kemur annað vandamál búin að kaupa alla mysu í Bónus og kaupfétinu og vantar enn svo sem 10 lítra svo að full séu.Annars er allt gott af mér og mínum að frétta
Ingunn og Pálmi eiga von á öðrum erfingja í mars.
Hrafndís flutt í borg óttans og stundar nú nám í kvikmyndaskóla Íslands
Hafrún er einnig í borginni verslunarstjór í Dorothy Perkins í Smáralind
Húni heldur að hann sé í ME
Spotti gaufast eins og hann er vanur
Ég hangi enn í Húsasmiðjunni og er búin að panta mér ferð til Kraká kem kannski aftur heim.
Haustbloggi lokið.
Munið svo að fara vel með ykkur og vera góð hvert við annað.
Segir orrustan sem er á leið til Kraká (ef hægt verður að fá gjaldeyri.)
Komin heimRagnhildur Ben
Sælan á enda á heitulandaslóðum, þar var ekkert uppvask engin eldamennska .En nú er ég komin komin heim í kulda og trekk ,vinnu og eldhússtörf.Annars er allt gott af mér og mínum að frétta utan Spotta sem fékk einhverja slæmsku í annan fótin þegar hann kom heim heim, og hefur legið í rúminu nánast bjargarlaus síðan.Alla vega þegar hann er beðin um að gera eitthvað.
Tíðindi eru frekar fá og smá af austurvígstöðvunum þessa dagana.biða ykkur bara vel að lifa og munið að vera góð hvert við annað og fara vel með ykkur.
segir Orrustan sem kom of snemma heim frá Spáni.
ps setti inn nokkrar myndir frá Spáni.
SPÁNNRagnhildur Ben
kl 7 at kveldi og 25 stiga hiti .Búin at finna tetta fína netkaffi í 5 mín gongufaeri frá íbúdinni.Vona bar ad tid hafid tad gott.
verid tid sael ad sinn og munid ad vera god hvert vid annad
segir orrustan sem hefur tad himneskt í sólinn á Spáni
SPÁNNRagnhildur Ben
Ég er farin til Spánar komin hálfaleið,er í augnablikinu i góðu yfirlæti á Álftanesinu hjá Önnu Mæju.Veri þið svo sæl að sinni og munið að vera góð hvert við annað.
Segir Orrustan sem er á leið langþráð frí.
Á Spáni er gott ađ djamma og ............Ragnhildur Ben
Þá er það ákveðið.Spánn 15 til 30 apríl.Hafrún sem að sjálfsögðu er uppáhaldsbarnið(að sögn systkyna sinn) gaf okkur ferð til Alicante í jólagjöf, og í kjölfarið var okkur boðin afnot af íbúð Ingu og Villa Ben á La Mata.Draumastaður Spotta. Og nú skal haldið í víking á Costa del Sol,drukkið djammað og ................keypt föt.Aðrar fréttir eru þær að hér snjóar og snjóar, og ég sem hata snjó og kulda tel bara niður til heitulandafarar.
Fáar eru fréttir aðrar af Héraði,hér hafa menn það bara allbærilegt.
Segir orrustan sem hlakkar til suðurfarar.
Munið svo að fara vel með ykkur og vera góð hvert við annað.
LoksinsRagnhildur Ben
Frekar er nú tíðindalaust af austurvígstöðvunum .Veður frekar vond ,umhleypingar. snjókoma ,slydda rigning hláka og frost.Hér er því allt í svellum og svellasvellum, sem er ekki gott fyrir þá sem ekki kunna fótum sínum forráð í slíku færi.Því fór frekar ílla fyrir mér morgun einn snemmindis, er ég ætlaði að snarast í vinnuna.Þegar ég kom að bílnum missti ég fótan og entrasentraðist held ég eina 6 metra útundan mér og hafnaði á bakinu ofan í poll með slíkum skell að hreyfing sást á skjáltamælinum á Aðlabóli.Annars er allt gott af mér og mínum að frétta.
Ingunn er flutt í Skógarhöllina sem þau byggðu hún og Pálmi.
Sigurður Óttar var skírður 2 des
Hrafndís gifti sig og flutti í Stykkishólm.
Hafrún býr enn á Selásnum og vinnur á Ferðaskrifstofu Austurland
Húni er enn heima hjá mömmu og pabba "stundar " nám við ME
Einar er enn á sama planinu
Ég er farin að vinna hjá Húsasmiðjunni.
Ekkert meira að sinni
munið að fara vel með ykkur og vera góð hvert við annað.
Segir Orrustan sem er heima með skaddað bak og egó
Lomminn og FjalsselRagnhildur Ben
Helgin var nokkuð góð hjá mér,fór í Loðmundarfjörð á laugardaginn í fermingu þar sem fermdir voru feðgar ,þeir Sigurður Snæbjörn og faðir hans Stefán Smári Stakkahlíðarjarl en það hafði gleymst að ferma hann á sínum tíma.Um kvöldið var svo brunað upp í Fjalssel þar sem var hinn árlegi F dagur,var þar margt manna og mikið drukkið og aldrei þessu vant var ég ekki bílstjóri.Sem sagt asskoti góður dagur.Munið svo að fara vel með ykkur og vera góð hvert við annað.
Segir orrustan eldhress eftir góða helgi.
ps það eru komnar inn myndir á myndasíðuna.